✔️Langar þig að öðlast dýpri skilning á eigin líkamaog jógaiðkun?
✔️Hefur þú áhuga á því að aðstoða í tímum
hjá Iceland Power Yoga?
✔️Viltu uppfæra tæknina þína við að aðstoða í jóga?
Baptiste kennararnir og reynsluboltarnir Inga Hrönn Kristjánsdóttir og Megan Townsend leiða saman þetta skemmtilega "Hands ON " námskeið: Listin að Aðstoða.
Hér lærir þú að aðstoða og fá aðstoð með áhrifamiklum, skapandi og eflandi hætti.
Námskeiðið er áþreifanleg þjálfun sem er hönnuð til að umbylta þinni persónulegu jógaiðkun, aðstoð og kennslu. Baptiste aðferðin mun veita þér verkfæri til að hafa bein áhrif á aðra.
Þetta námskeið er fullkomið fyrir:
Nemendur sem langar að þróa hæfni sína í jóga iðkuninni og skapa dýpri skilning á þeirra eigin líkama í þeirra persónulegu iðkun.
Alla sem langar til að eiga nýja upplifun með tengingu við aðra og þjóna öðrum.
Kennara og iðkendur sem hafa áhuga á því að aðstoða með snertingu í Baptiste Power Yoga tímum.
Alla þá sem eru nú þegar að kenna og/eða aðstoða og vilja uppfæra aðstoðstækni sína.
Eftir námskeiðið ertu:
komin með grunnþekkingu á grunnaðstoð í Journey into Power (JIP), þar með talið dýpri skilning á þinni eigin iðkun.
búin að læra að gefa aðstoð í hverri stöðu í JIP flæðinu.
búin að læra 3 tegundir af aðstoð: leiðbeinandi, styrkjandi og dýpkandi.
með færni í ýmsum leiðum til að aðstoða á skapandi hátt samkvæmt JIP aðferðinni.
meðvitaður um að nota True North Alignment til að gefa áhrifamikla og styrkjandi aðstoð.
með vekfæri til að aðstoða heilan JIP tíma.
Hvar: Iceland Power Yoga, Holtasmári 1, 201 Kópavogi Hvenær: 17. – 18. – 19. september Tímasetningar: Föstudagur 16:30 - 21:00 Laugardag kl. 8:00 – 18:00 Sunnudag kl. 8:00 – 17:00 Kennarar: Inga Hrönn Kristjánsdóttur 500 E-RYT og Megan Townsend 500 E-RYT og viðurkenndir Baptiste Power Yoga kennarar. Verð: 49.900 kr. Skráning í Glofox appinu undir Námskeið eða smelltu hér til að skrá þig.
תגובות